MymypaceHelga Ragnarsdóttir

Ég er komin með myspace síðu.

www.myspace.com/helgarrr

Errunum fjölgar bara.

Endilega addið mér, ég er að gera heiðarlega tilraun til að vera félagslynd. ^^

Ţar sem hún lifir!Helga Ragnarsdóttir

Í kvöld er ég á gestalista á NASA.

Haha!


Í öðrum fréttum halda flestir að Toggi og Eygló eignist amöbu.
Mmm, nammi.

Já, og ég bakkaði á gamla konu á jarðarförinni hans afa míns. SCORE!

Um íslensku á mblHelga Ragnarsdóttir

Drengurinn, Shneur Zalman Friedman, var á ferð með fjölskyldu sinni á vinsælum sumarleyfisstað við hafið, hann var á sundi með föður sínum þegar sterkur straumur hreif hann með sér og hvarf drengurinn, björgunarmenn segja að svo langur tími hafi liðið að þeir hafi í raun verið að leita að líki þegar drengurinn fannst.

Tekið af mbl.is


Eru þeir að grínast? Þetta nær því ekki að vera íslenska.
Mbl er virkilega að missa það.

ATH: Ný könnun hér til hliðar!

'elloHelga Ragnarsdóttir

OMG ÞAÐ LIFIR!!

Þið standið ykkur gasalega vel, 41 heimsókn í þessum mánuði, hef ekki póstað frá því í maí og það er einungis 26. þessa mánaðar.

Ég held ég muni reyna að standa mig aðeins betur núna í vetur heldur en ég gerði síðast. Ég hef nefnilega svo margt merkilegt að segja.

Annars erum við Eiríkur búin að fá námsmannaíbúð í Bólstaðarhlíðinni í gegnum BÍSN. Búin að skrifa undir samning og allt. Flytjum að öllum líkindum 21. ágúst eða í vikunni þar á eftir. Þið eruð öll skyldug til að hjálpa til. :P

Svo, hverjir eru enn hér? Rétta upp hönd.

tónsmíđatónleikarHelga Ragnarsdóttir

Tónleikar

Tónsmíðatónleikar næsta föstudag klukkan 8 í Sölvhóli (tréhúsinu bak við skólann) við Sölvhólsgötu. Ókeypis inn, Helga með 2 verk.

Jæja, nú getið þið ekki kvartað yfir að fá ekki að vita neitt. XD

sjáum hvort ţađ tekstHelga Ragnarsdóttir



Ekki nóg með að það sé að koma mynd heldur get ég komist að því hver minn dæmon væri.
XD

c'mon, þið hafið ekkert betra að gera!
Þið látið bendilinn á myndina og fylgið leiðbeiningunum!  

LeiksýningHelga Ragnarsdóttir

Epli og eikur
Leikfélagið Hugleikur hefur hafið sýningar á leikritinu Epli og eikur eftir Þórunni Guðmundsdóttur (frænku Beggu). Það er frábært, mest vegna þess að ég er í því, en annars eru hinir svo sem ekkert að skemma fyrir.

Þið panta miða hér. Núna! Kostar litlar 1500 krónur og geisladiskur til sölu á staðnum.

mikill dagurHelga Ragnarsdóttir

Til hamingju með dauðadaginn, Haukur!

Fjögur ár er alveg hellingur.
Í dag erum við Eiríkur líka þriggja og hálfs.


Í örðum fréttum, hvernig getur ykkur þótt pizza betri en kynlíf?!
Þið skrítna fólk.

Þessa dagana er ég búin að taka c.a. þrjár flensur, tekið upp tónlist með Hugleiki með smá kvef í lungunum, spilað FFXII eins og brjáluð og lítið lært.
Damn.

Helga Ragnarsdóttir

Svo.
Ég fékk flensuna fyrir viku.
Ég er enn með agalegt kvef.
Versta er að ég er að taka þátt í Hugleiks sýningunni þar sem ég á að syngja eins og vindurinn.
Söngæfing í dag.

Long story short, it did not go well.

Svo, allir að mæta á Epli og eikur í uppsetningu Hugleiks í mars.
:D

Litla skrímsliđ lifir!! :DHelga Ragnarsdóttir

Afmælisóskir til Leðurskrímslisins.
Það er 26 ára fornaldarskrímsli.

Svo. Ég er ekki dauð.

Lítið gerst, nema hvað ég er á túr og á að vera að læra. En það er svo sem nokkuð algengt.

Jæja.


Allir að fjölmenna á Rósenberg í kvöld!


Ljótu hálfvitarnir eru að spila, þar af bræður mínir þeir allra ljótustu. Fúsundkall inn (sem sagan segir að sé u.þ.b. það sama og þúsund krónur íslenskar) og massastuð.
Þeir verða líka að spila á morgun, en ég verð bara í kvöld. Og hver vill ekki hitta mig? ;*






Naruto: Shippuden er byrjað!!! Ég er að downloada þætti 1-2, en OMG það hlýtur að verða hesta!!
Mangað er enn ofsa dapurlegt. ;_;

Ađalvalmynd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Könnun

Hvađ munu Toggi og Eygló eignast?

Leit